Sjavarfrettir.is | © Allur réttur áskilinn | Framtíðarsýn hf | Mýrargata 2-8 | 101 Reykjavík | Sími : 511 6622 | skip@skip.is
Sjávarfréttir er veraldarvefur sem settur er upp um borð í skipum og byggir á vinsælasta fréttavef landsins um sjávarútveg, www.skip.is. Annað fjölbreytilegt efni stendur til boða. Uppfærslur í Sjávarfréttir eru sóttar af notendum eins oft og þeir kjósa og eru þær fyrirferðarlitlar og fljótsendar um Sjópóst Símans.
Fjölbreytilegt efni stendur til boða. Sjálfgefið er að menn fái allar einingar sendar en áskrifendur fá úthlutað sérstökum síðum þar sem þeir geta stillt sína áskrift. Unnið verður áfram að þróun og viðbótum, en í nú eru eftirtaldar efnisveitur virkar:
Þjónustan er í áskrift. Einungis er greitt fyrir þá daga sem þjónustan er notuð, en þá er kostnaður 150 kr. á dag (án vsk). Hver notandi fær úthlutað Sínum síðum og þar má fá nánari upplýsingar um þjónustuna, verð og stillingar. Einnig getur hver notandi fylgst nákvæmlega með notkun sinni.
Uppsetning á Sjávarfréttum er einföld. Þar sem kerfið byggir á Sjópósti Símans eru það alla jafna sett upp um leið og Sjópósturinn. Vandalaust er þó að setja það inn síðar og þarf enga sérstaka kunnáttu til þess.
Nánari upplýsingar um Sjópóst og Sjávarfréttir má finna í eftirtöldum greinum:
Útgefandi Sjávarfrétta er Myllusetur ehf. sem gefur einnig út Fiskifréttir, skip.is, vb.is, Viðskiptablaðið og Sjómannaalmanakið.
Nánari upplýsingar um Sjópóst Símans má finna á slóðinni www.sjopostur.is.